2. umferð í Sókrates klárast (loksins)
Eftir nokkuð langt hlé mun spurningakeppnin Sókrates fara aftur af stað eftir helgi, nánar tiltekið á þriðjudaginn. Þar verður loksins lokið við aðra umferðina, sem fór af stað fyrir jól. Vegna æfinga leiklistarhópsins verða keppnirnar hér eftir haldnar í Matsalnum!, ekki í Uppsölum, og hefjast þær að vana klukkan 8. Strax að loknum keppnunum á þriðjudaginn verður svo dregið í 8-liða úrslit, en tvö stigahæstu tapliðin í 2. Umferðinni komast þangað. Keppnirnar verða eftirfarandi:
2.NA – 3.FS
4.T – 1.NÞ
4.FU – 2.FF
Við hvetjum alla til að mæta og hvetja sína bekki, og minnum á að foföll skal tilkynna tímanlega.
Kv. Loki