AAA


Allt að gerast - ný síða!

Betra er seint en aldrei. Glæný Keðjusíða er komin í loftið. 

Taka skal fram að enn er verið að vinna í síðunni þannig það er ekki allt komið inn en það verður gert á næstu dögum þannig verið dugleg að skoða síðuna, lámark 17 sinnum á dag. 

Eins og sjá má er útlitið miklu flottara en oft hefur verið og getum við þakkað TikkTakk fyrir góða vinnu. 

Hér koma inn allar upplýsingar varðandi viðburði Keðjunnar, tilboð, myndir, myndbönd, skráningu, símaskrá og margt margt fleira. Ef þið hafið áhuga á að senda inn frétt eða hvað sem ykkur dettur í hug þá skulið þið bara endilega hafa samband. 

Símaskráin kemur fljótlega en þar getið þið leitað af öllum Kvennskælingum. Fljótlega getið þið líka skráð ykkur inn á síðuna, tekið þátt í spjallborðinu, breytt upplýsingunum ykkar og margt fleira. Þetta verður allt útskýrt betur hér á síðunni þegar nær dregur.

Munið - dugleg að skoða síðuna

Picture 4.png