AAA


Fótboltamót Kvennó

Íþróttanefnd heldur sitt árlega fótboltamót á KR-vellinum næsta föstudag.

Um er að ræða innanskólamót á gervigrasinu en mótið hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma. Skráning er nú þegar hafin og eru skráningarblöðin bæði í Uppsölum og í N-byggingunni.

Það eru 7 manns í hverju liði, meiga vera fleiri en það eru 7 inná í einu með markmanni. Undanfarin ár hafa mörg lið tekið sig saman og mætt í skemmtilegu outfitti og er það mjög vel séð þó að alvaran sé í fyrirúmi á þessu móti. 

Það kostar 200 krónur á hvern keppanda og verður rukkað á staðnum. Þetta er eitt stærsta íþróttamót Kvennaskólans (að Dodgeball mótinu undanskildu) þannig það er um að gera að mæta, taka þátt eða styðja uppáhaldsliðið ykkar. 

Athugið að það verður að vera a.m.k. ein chicka* í hverju liði.

bolti.jpg.jpeg

Leynigestur verður Fernando Torres.

Kv. Íþróttanefnd

* stelpa