Fyrsta Gettu Betur keppnin
Þá er komið að því. Fyrsta Gettu Betur keppni lið Kvennaskólans í Reykjavík verður mánudaginn 18. janúar á móti liði Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Þetta er undankeppni, betur þekkt sem útvarpskeppni þannig hún fer fram í húsakynnum RUV í Efstaleiti og hefst keppnin klukkan 20:00.
Það er mjög mikilvægt að mæta stundvíslega þar sem þetta byrjar á slaginu 20:00. Það er áhorfendastæði þarna þannig það er um að gera að láta sjá sig og styðja lið Kvennaskólans til sigurs í þessari fyrstu keppni okkar þetta skólaárið.
Lið Kvennó í ár skipa:
Jörgen, Bjarki og Bjarni