Go-Kart Keppni Framhaldsskólanna
Við hjá Go Kart brautinni erum flutt í stórglæsilegt innanhúsrými í
Korputorgi og höfum sett upp frábæra aðstöðu, lýsingar, hljóðkerfi og
skjávarpa til að gera þetta enn meira kræsandi. Þar fyrir utan erum
við búnir að breyta öllum bílunum sem gerir þeim kleift að fara enn
hraðar!
Nú er komið að því að taka skrefið örlítið lengra og halda
menntaskólakeppni í Go Kart akstri, allir skólar á höfuðborgarsvæðinu
fá tækifæri til að spreyta sig og eru vinningarnir ekki af verri
endanum þar sem að vinningshafinn hlýtur ferð til útlanda á Formula 1,
glænýjan Gsm síma frá Vodafone, 10 ferða gjafakort frá Go Kart
brautinni og heldur betur veglegar birgðir af Coca Cola.
Kvennaskólinn keppir föstudaginn næsta klukkan 18:00
Uppsetning mótsins er eftirfarandi:
Hver einstaklingur fær 6 mínútur í tímatöku og svo 20 hringja Race.
Þannig finnum við besta ökumann hvers skóla og fær hann frítt í
úrslitakeppnina þar sem bestu ökumenn skólanna mæta og keppast um
verðlaunin sem eru ekki af verri endanum en sigurvegarinn hlýtur
vegleg verðlaun frá Iceland Express, Vodafone, Coca Cola og Go Kart
brautinni.
Á staðnum verður risa stigatafla þar sem skólarnir geta fylgst hvor með öðrum.
Þátttökugjald er 3.900 kr. á mann sem greiðist á staðnum. Til
samanburðar má geta þess að undir venjulegum kringumstæðum kostar 10
mín. akstur 3.900 kr. og er hver keppandi þ.a.l. að fá mun meira fyrir
peninginn.
Hér fyrir néðan er skráningarblaðið en þið þurfið að skila því fyrir fimmtudaginn næsta inná Nemó!
skra.doc
Allar upplýsingar veitir Hannes í síma 865-6331
eða Go Kart síminn 771-2221