GO-kart mót Kvennaskólans!
Go-kart Kvennaskólans verður haldið klukkan 21:00 fimmtudaginn
11. febrúar.
SKRÁNING INNÁ NEMÓ!!!!
Þá er farin af stað GoKart keppni framhaldsskólanna hjá GoKartbrautinni í korputorgi. Þetta er gríðarlega stórt tækifæri fyrir skólana til að sýna hvað í þeim býr þegar að það kemur að Gokart-akstri, margir komnir bílpróf og nú er rétti tíminn til að sanna sinn innri schumacer! Svo eru það vinningarnir sem að spanna allt frá utanlandsferð, hljóðvinnslunámi hjá þorvaldi bjarna, Klippi kort frá GoKart brautinni, 3G síma frá símanum og birgðir af Coke Cola!
Hvernig gengur keppnin fyrir sig? Og hvað kostar?
Allir skólarnir eiga sinn dag og tíma á brautinni þar sem að ótakmarkaður fjöldi úr hverjum skóla mega taka þátt, hver og einn þáttakandi keyrir í 10 mínútur og er þáttökugjald 3.900 kr sem er sama og venjulegur 10 mínútna akstur á brautinni.
Þegar allir þáttakendur hafa lokið sér af er farið yfir 8 bestu tímana og þeir látnir taka lítið race sem hljóðar sem svo; 9mínútur í tímatöku og 25 hringja race.
Sá sem vinnur race-ið fær að keppa fyrir hönd skólans í úrslita race-inu og kominn skrefinu nær að glæsilegum vinningum!