AAA


Góðir hálsar!

Það er komið að því, stundinni sem allir hafa beðið eftir :D…….allavega ég.
Stærsta vika ársins, Eplavikan, er í þann mund að hefjast.

Á mánudaginn hefst hún með pompi og prakt og byrjar hún af sjálfsögðu með látum. Í hádeginu verða þrumur og eldingar þegar Veðurguðinn Ingó stígur á svið og get ég lofað því að það verður ekki þurrt sæti í matsalnum, allavega ekki mitt! Frábær byrjun á frábærri viku. Um kvöldið verða svo æsispennandi keppnir í Sókrates og hvetjum við alla til að koma að styðja sinn bekk.

En bíðið bara, við erum rétt að byrja því að á þriðjudeginum kemur hin víðfræga hljómsveit á hraðri leið inní frægðina Bróðir Svartúlfs og munu þeir leika fyrir dansi í hádeginu! Um kvöldið verður síðan hápunktinum náð með DODGEBALL mótinu! Þess má geta að þessi titill er einn sá allra merkasti sem hægt er að fá í Kvennaskólanum, framtíð þín er örugg ef þú hefur unnið Dodgeballmót Kvennó.

Miðvikudagurinn verður nú heldur ekki af verri endanum en þá fáum við nokkur af hæfileikaríkasta fólki skólans til þess að skemmta samnemendum, má þar nefna B.i.g-ga en hann mun rappa eins og enginn sé morgundagurinn, á eftir honum mun síðan hún Kristrún í öðrum bekk syngja ljúfa tóna til þess að ná okkur niður á jörðina og endum við síðan hádegið á HELLAÐRI spunakeppni á milli sigurvegara spunakeppninnar og áskorenda sem eru ekki af verri endanum.  Getum við lofað miklum hlátri og tárum!
Um kvöldið verður síðan SICK sundlaugapartý með SICK tónlist, SICK heitu fólki, SICK ljótu fólki og  síðast en ekki síst SICK dýfingum og mun formaðurinn eiga fyrstu dýfu kvöldsins til að hefja partýið, en allt þetta fer fram í sundhöll Reykjavíkur! Kostar 100 krónur inn og  byrjar gamanið klukkan 9.


Epladagurinn sjálfur!
Þá er komið að því, dagurinn sem ALLIR þá meina ég ALLIR hafa beðið eftir!, EPLADAGURINN!  Þá fáum við frí frá hádegi og munum við fara öll sama upp í Uppsali og halda uppi góðri stemmingu til þess að hita upp fyrir kvöldið!

Rauðkukeppnin (í matsalnum) - Þegar við tölum um upphitun þá erum við að tala um aðalviðburði vikunnar sem hafa verið hefðir í jafnlangan tíma og tónlistarferill Ragga Bjarna.  Þá ber fyrst að nefna Rauðkukeppnina. Allir nemendur mæta í einhverju rauðu í skólann og sá nemandi sem er rauðastur og nettastur verður krýndur Rauðkumeistari Kvennaskólans árið 2009 og fær sá hinn sami frían miða á ballið. Að keppninni lokinni heldur hópurinn upp í U þar sem allt verður CRAZY.

Eplalagið
Eplalag ársins verður kynnt með miklum tilþrifum. Það er ennþá tími til að semja lag þannig að takið upp hljóðfæri, brýnið raustina í góðra vinahópi, einn bekkur saman eða bara solo, sem er sjúklega töff.

 


 

Lukkudýrið

Það er ekkert kjaftæði að kvennaskólinn er með besta stuðningslið í Gettu Betur og Morfís, ásamt öðrum atburðum en alltaf hefur eitthvað smá vantað uppá, þetta extra. Nú er þetta extra þó komið í hús. Fyrsta lukkudýr skólans!! Mikil leynd hefur verið yfir því hvað lukkudýrið er en það verður kynnt þarna á fimmtudaginn, mikil spenna og eftirvænting hefur verið í nemendum en nú er biðin á enda, lukkudýrið er mætt!!

Eplamyndin

Eplamyndin sjálf verður frumsýnd í hádeginu en vídeónefnd hefur unnið hörðum höndum við að gera eplamyndina stórfenglega, eða við rétt vonum það. Hún verður ossom! Þetta er það seinasta á dagskrá þarna um daginn.

Eftir þetta halda allir nemendur heim á leið. Stelpurnar fara að vinna hörðum höndum við að gera sig reddí á meðan strákarnir detta í lögn til svona 5 og henda sér svo í einhver föt, jafnvel sturtu áður. Allir bekkir fara fínt að borða með kennaranum, allir ógeðslega sætir og fínir og hafa síðan gaman og peppa sig upp fyrir hið eina sanna Eplaball á Broadway sem verður aaaaaaf króknum skemmtilegt og verður lengi í minnum haft. Dj-Öfull og Gameboy Dídjeiast uppi og í hliðarsalnum á meðan tvær heitustu hljómsveitir Íslands, Ultra Mega Technobandið Stefán og Fm Belfast gera allt viiiiitlaust. Þess má svo til gamans geta að ballið er til 2 ekki 1 eins og vanalega þannig að gleðin endist lengur!

 

Við getum lofað því að þessi vika verður ossom og það geta alltaf bæst við einhverjir aðrir atburðir. Gerum þetta að bestu viku í heimi, hún er bara einu sinni á ári!
Viva Versló…djók