AAA


Hörður sigurvegar á Rymju

Íslenska Óperan fylltist af Kvennskælingum síðasta föstudag þegar um 450 manns fóru að sjá Rymju, söngkeppni Kvennaskólans. Þetta var í annað sinn sem keppnin fer fram í húsakynnum Íslensku Óperunnar og má segja að hún hafi aldrei áður verið eins flott og í ár. 

Svitabandið sá um undirleik með keppendum sem voru alls 13 talsins í ár. Það mætti halda að hljómsveitin hafi spilað þessi lög frá blautu barnsbeini því fagmannlegra gat þetta varla orðið meira hjá þeim og þökkum við þeim kærlega fyrir ásamt hljóðmönnum og Palla Ragnasr ljósameistara sem færði Rymju uppá hærra level.

Eins og áður kom fram voru 13 atriði sem tóku þátt í ár. Opnunaratriðið var sjálf Jóhanna Guðrún sem var einnig í dómnenfnd ásamt Heiðu sem er oft kennd við "Idol", en Jóhanna tók lagið "Respect" og var hún landi og þjóð til sómar með þessum fluttningi.

Eftir 13 atriðið keppenda ætlaði þakið að hrynja af húsinu þegar meistari Friðrik Dór kom, sá og sigraði þegar hann flutti smellinn "Hlið við Hlið" og bræddi hann mörg Kvennaskólahjörtu.

Eftir dómarahlé var komið að því að tilkynna sigurvegara en í 3. sæti var Alda Dís með lagið "Say A Little Prayer" sem hún flutti með stakri príði ásamt flottum bakraddasöngskvísum. 

Í 2. sæti var stelpa sem á framtíðina fyrir sér í söng. Kristrún tók annað sætið með lagið "Hugarflug" sem er frumsamið en hún nýtti sér hljómsveitina til þess að hjálpa sér við fluttning en Kristrún spilaði á gítar í laginu. Frábær frammistaða hjá henni.

1. sætið tók meistari Hörður Arnarson sem er nemenadi í 4. bekk en hann tók lagið "Change Is Gonna Come" í útgáfu Adam Lambert og átti Höddi sigurinn svo sannalega skilið og verður hann flottur fulltrúi Kvennó á Söngkeppni Framhaldskólanna sem mun fara fram 10. apríl n.k. 

Í verðlaun voru margir stórglæsilegir vinningar og má þar nefna kassa af appelsíni, símar frá Vodafone, út að borða á KFC, Caruso og Bernhöftsbakarí, blómvendir og margt margt fleira. 

Keðjan þakkar keppendum fyrir frábæra skemmtun þetta kvöld og nú er um að gera að skipuleggja ferð til Akureyrar 10. apríl og styðja Hödda til sigurs.

Mynbönd og myndir eru væntaleg inná síðuna fljótlega. Mjög fljótlega!