AAA


Kvennó vs Flensborg í MORFÍS

Já þið heyrðuð rétt!  Fyrsta MORFÍS keppni vetrarins fer fram núna á Miðvikudaginn í Uppsölum og hefst húllumhæið klukkan 8. 

Umræðuefnið verður „Eyðum Afríku“ og mælir lið Kvennaskólans á móti.  Klappliðið, með nýja lukkudýrið í broddi fylkingar, mun fara hamförum og að sjálfsögðu eru allir hvattir til að mæta og styðja við bakið á liðinu sem hefur unnið baki brotnu við undirbúning fyrir keppnina.   

Liðið verður þannig skipað:
Liðsstjóri:  Oddur Ævar Gunnarsson – 1.F
Frummælandi: Helgi Guðmundur Ásmundsson – 3.NL
Meðmælandi: Óli Björn Karlsson – 4.FS
Stuðningsmaður: Baldur Eiríksson – 4.FU


Fjölmennum nú í Uppsali og sýnum þessum Hafnfirðingum hvar Davíð keypti ölið!

 

- Loki