Kvennó vs. MH
Kæru Kvennskælingar
Skráningin er hafin fyrir keppnirnar á Kvennó vs. MH deginum sem verður í næstu viku.
Skráningin er inná Nemó en endilega skráið ykkur sem fyrst. Það er fólk nú þegar búið að skrá sig í nokkrar keppnir en lokað verður fyrir skráningu á þriðjudaginn næsta.
Eftirfarandi keppnir verða:
- Fótbolti
* 4 strákar og 4 stelpur. Leiktími verður 2x7 mín. Blandað lið
- Körfubolti
* 4 strákar í strákalið og 4 stelpur í stelpulið. Leiktími verður 2x4 mín.
- Kubbur
* 1 strák og 1 stelpu. 10 kubbar á lið. Blandað lið
- Sjómann
* 1 strák og 1 stelpu. Ein keppni á mann
- Puttastríð
* 1 strák og 1 stelpu. Ein keppni á mann
- Þrautahlaup
* 1 strák EÐA 1 stelpu. Þrautabraut (kókosbolla og pilsner, hlaup, lyfting, stökk o.fl.)
Búið er að ákveða ræðuliðið sem keppir um kvöldið en liðið skipa:
- Oddur Ævar Gunnarsson (liðstjóri)
- Óli Björn Karlsson
- Baldur Eiríksson
- Grímur Gunnarsson