Leiktu Betur í Íslensku Óperunni
Spunakeppni Framhaldsskólanna, Leiktu Betur verður haldin miðvikudaginn 11. nóvember í Íslensku Óperunni kl. 20.00 Við mælum með að allir kvennskælingar mæti á svæðið og styðji sinn skóla.
Það er FRÍTT inn, alveg ókeypis, þannig tilvalið fyrir fátæka nemendur sem hafa gaman af því að hlæja.
Í spunaliði Kvennó í ár eru Ari Freyr, Heiðdís Haukdal, Ólafur Heiðar og Vala Björg.
Fyrir þá sem ekki vita hvað spuni er þá er spuni er form að leiklist sem er óæft. Í Leiktu Betur er hver spuni er sirka 3 mín eða minna og getur verið um hvað sem er t.d. bleika fíla sem vinna í skyrtuverksmiðju í Zimbabwe sem gera ýmislegt til að fá áhorfendur til að hlæja.
MÆTTU!
kv. Fúría