AAA


Lista & Íþróttavika

Nú er komið að enn einni mega viku Kvennó, að þessu sinni eru það Lista&íþróttanefndirnar sem eru búin að sjóða saman stórglæsilega dagskrá.

Á þriðjudaginn munum við halda uppá Alþjóðadag stúdenta.
Um kvöldið verður síðan risapókermót Kvennó! Það hefst með kennslu frá baneitruðum leynigesti, fyrir stelpurnar sem eru ekki alveg með reglurnar á hreinu. Síðan verður póker spilaður fram í rauðan dauðann og fáum við því þá svarað hver sé besti pókerspilari Kvennó, ætli það verði Jöggi P? 1000 kr. við hurð hefst kl 19.30!!

Á miðvikudeginum verður magnað Japanese game show video sýnt í hádegishléinu og síðan verður keppt í þessari stórkostlegu íþrótt.

Á fimtudaginn mun Linda Ósk, ein sú heitasta í bransanum í dag, stíga léttan dans í matsalnum. Hún verður með magnað dansatriði í hádeginu.

Vikan mun síðan enda á allsvaðalegum fótboltaslag!!! Í hádegishléinu munu stelpur úr 3. og 4. bekk slátra ungum piltum úr 1. og 2. bekk í fótbolta.
Um kvöldið verður síðan rosalegt fótboltamót haldið kl 21. Það verður haldið í Kórnum í Kópavogi. Keppt verður í 7 manna liðum og skylda er að hafa allaveganna tvær prinsessur (stelpur) í hverju liði. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir sigurvegarana. Okkur hlakkar mikið til að sjá búningana hjá liðunum, en veitt verða verðlaun fyrir bestu búningana! Skráning á mótið fer fram á veggjum skólans, og verða allir að vera búnir að skrá sig fyrir miðvikudaginn og borga þátttökugjaldið inná Nemó en það eru litlar 2100 kr. á lið!