Ljóðaslamm 2010
Þriðja ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið föstudagskvöldið 12. febrúar í aðalsafninu í Tryggvagötu. Að þessu sinni er þemað VÆMNI, sem ætti að bjóða upp á fjölbreyttar hugleiðingar – fjarri kreppu og barlómi. Sem fyrr er ljóðaslammið ætlað ungu fólki og er skilgreint á afar opinn hátt sem eins konar ljóðagjörningur. Áherslan er ekki síður lögð á flutninginn en á ljóðið sjálft. Eina krafan er að flutt sé frumsamið ljóð eða stuttur prósi og hafa þátttakendur sýnt dansverk, ör-leikþætti, rapp, söng og leiklesin ljóð með myndefni eða tónlist svo eitthvað sé nefnt. Hefðbundinn ljóðaupplestur telst ekki vera ljóðaslamm.
Hvort sem er einstaklingar eða hópar (hámark 5 í hóp) geta tekið þátt. Hámarkstími atriðis eru 5 mínútur.
Í dómnefnd verða Bragi Ólafsson skáld, Heiða Jóhannsdóttir tónlistarkona, Arngrímur Vídalín skáld, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur.
Skráning fer fram í öllum söfnum Borgarbókasafns eða með tölvupósti til: kristin.vidarsdottir@reykjavik.is. Skráningarfrestur er til 20. janúar.
Nánari upplýsingar ásamt vídeóupptökum úr fyrri ljóðaslömmum og ljósmyndum úr keppnunum er að finna á: www.ljodaslamm.is
