AAA


Mikið framundan

Það er margt framundan hjá okkur en við viljum byrja á því að skora á fólk að tjekka á þessari heimsíðu oftar en 2 á ári. Hérna koma inn allar fréttir um viðburði, hvað er að gerast og svo framvegis. 

Byrjum á því að myndatökur fyrir árbókina hefjast í næstu viku. Þetta á náttúrlega við þá einstaklinga sem eru í 4. bekk en stúlkurnar sem eru í þessari nefnd voru búnar að birta inn frétt hérna á síðunni þar sem þið getið frætt ykkur um þessa myndatöku. 

Linkur á frétt: http://www.kedjan.is/frettir/myndatokur-fyrir-arbokina/

Búið er að velja í Gettu Betur úrtakið og eru nöfn þeirra sem voru valin hérna á heimsíðunni (sko.. það fer bókstaflega allt á þessa síðu... nema símaskráin. Um leið og Óli nennir að klára það sem hann á að klára þá kemur símaskráin inn, kýlið hann í öxlina næst þegar þið sjáið hann). Loki eða málfundafélagið sendi inn pistil með nöfnunum en þið getið skoðað allar fréttirnar með því að smella á „skoða allar“ niðri í horninu til vinstri eða fara á www.kedjan.is/frettir

linkur á frétt: http://www.kedjan.is/frettir/gettu-betur-urtak

Í næstu viku verður skemmtilegur viðburður sem listanefndin ætlar að standa fyrir. Endilega fylgist með hérna á síðunni varðandi upplýsingar um þennan viðburð.

Slaufudagurinn er í dag hjá 2. bekk. Gefið verður frí eftir hádegi hjá 2. bekk og keppa bekkirnir yfir daginn um Slaufumeistaratitilinn (ath. undirritaður getur ekki staðfest að titilinn beri þetta nafn) en um kvöldið verður toppnum náð þegar allir hittast í félagsheimilinu á Seltjarnanesi þar sem húllum-hæ-ið heldur áfram. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi dagur er haldinn og verður þetta mjög spennandi að sjá hvernig hann mun virka en stelpurnar í Slaufudagsnefndinni eru búnar að standa sig eins og hetjur að skipuleggja þennan dag. Klapp klapp

Eplaballið er svo 5. nóvember. Sofið vel vikunar áður því þetta verður Rooooooosaleg vika. Það verður mjög þétt dagskrá alla vikuna, viðburðir alla daga í hádeginu. Við erum að tala um hluti eins og:

  • Eplalagakeppnin (www.kedjan.is/eplalagakeppnin)
  • Rauðukeppnin
  • Hljómsveitir 
  • Dodgeball mótið
  • Og margt fleira

Þess má til gamans geta að miðasala á Eplaballið hefst á föstudaginn í næstu viku og kostar litlar 2500 krónur fyrir Kvennskælinga á þetta ball og 2900 fyrir utanskóla.

Það verður all svakalegt line-up á þessu balli enda um Eplaballið sjálft að ræða en FM Belfast verða þarna ásamt Ultra Mega Teknó Bandinu Stefáni, DJ-Öfull (Unnsteinn í Retro Stefson) mun vera á svæðinu ásam DJ crewinu GAMEBOY en það er aldrei að vita nema fleiri bætist við. 

Tjekkið á síðunni reglulega! Amen og út!