AAA


Nefndaferð, taka 2!

Það er mikilvægt að innan nemendafélagsins séu allir á sama stað og hjálpist að, að gera félagslífið í okkar frábæra skóla, betra! Hvernig gerum við það? Jú, við hóum hópinn samann, allar nefndir skólans sem og bekkjarformenn og leggjum land undir fót og förum í eitt stykki nefndarferð. 

Nú er önnin rétt nýhafin og er margt sem þarf að skipuleggja, margt sem þar að ræða um og margt sem þarf að ákveða. Annar aðalfundur miðstjórnar verður á föstudaginn næsta á Hlöðum í Hvalfirði en farið verður stundvíslega klukkan 17:00. Áætlaður komutími í bæinn aftur er um 15:00 leitið daginn eftir, allir vonandi mjög sáttir. 

Eins og einhver orðaði í Facebook eventinu fyrir þennan viðburð þá er Sindri gjaldkeri í góðu skapi og hefur staðið sig mjög vel og verður því verðið í þessa ferð með svona.. 2007 fýling en ferðin kostar aðeins 2500 kall á kjaft. Vegna þess hversu stuttur fyrirvarinn er og hvað þetta er seint í mánuðinum þá ætlum við að gefa kost á því fyrir þá sem vilja að borga á mánudaginn, sem er 1. febrúar og einhverjir búnir að fá útborgað.  Auðvitað er lang best að borga bara strax!

ANNARS ÞURFA ALLIR AÐ LÁTA OKKUR VITA INNÁ NEMÓ Í SÍÐASTALAGI FYRIR FIMMTUDAGINN Í HÁDEGINU HVORT ÞIÐ ÆTLIÐ MEÐ EÐA EKKI (stærð á rútum, sjáiði til:) :)

Vonandi mæta sem flestir því það er margt sem við þurfum að ræða... 

ps. Við höldum verðinu niðri og sleppum því að sjóða vondar pylsur þannig komið með ykkar eiginn mat. 

Þeir sem eru undir 18 ára aldri þurfa að sækja leyfisbréf inná Nemó ASAP!

It's gonna be legendary!