AAA


Nemendamyndir komnar

Einhver sagði einhverntímann... "Betra er seint en aldrei". Sá maður er snillingur.

Nemendamyndirnar eru nú loksins komnar inná þessa blessuðu heimasíðu eftir alltof langan tíma. Við biðjumst afsökunar á þessu en það er ekki auðvelt að henda inn myndum, símanúmerum og e-meilum hjá 600 nemendum. 

Það er fyrirtæki útí bæ sem sér um þessa síðu en stjórnin ber ábyrgð á að þeir sinni sinni vinnu og að síðan sé virk. Síðan er reyndar mjög virk. Allar fréttir koma hérna inn á síðuna, ljósmyndanefnd er dugleg að taka myndir af viðburðum og þær koma hérna inn líka, nokkur video hafa verið sett inn via youtube en þær eru inní fréttum og svo eru hérna mjög fallegir bannerar sem sveifa um á forsíðunni með helstu upplýsingum um viðburði. 

Núna eru nemendamyndirnar komnar inn, ásamt símanúmerum, heimilisfangi og e-maili þannig að allir stalkerar í bænum eiga auðvelt með að finna ykkur. Að geta skráð ykkur inn og lagað allt á að koma á næstu dögum.

Kæru einstaklingar sem vilja hjálpa okkur að gera síðuna betri: Við sendum e-mail á alla bekkjarformenn og báðum þau að fara yfir með bekknum hvort það þurfi að laga eitthvað, hvort símanúmerin séu rétt, hvort heimilsfangið sé rétt og svo framvegis. Endilega, þegar það er búið að fara yfir allan bekkinn ykkar sendið okkur það sem þarf að laga á kedjan@kvenno.is sem allra fyrst. 

Verið svo dugleg að skoða þessa síðu, hún er flott og virk þannig það er ekkert sem ætti að hindra ykkur við að tjekka á henni, einu sinni á dag. 

Pís át