AAA


Opið hús í Listaháskólanum

Föstudaginn 13. nóvember nk. verður Opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og er áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Þetta er frábært leið til að kynna sér framhaldsnám og listnám.

Í Listaháskólanum verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar. Fjölbreytt dagskrá verður í deildum skólans og má þar nefna uppákomur, leiðsögn um deildir og sýningar á verkefnum nemenda. Jafnframt munu gestir geta fengið upplýsingar um umsóknarferli og nemendur munu kynna inntökumöppur.

Myndlistardeild, listkennsludeild og hönnunar-og arkitektúrdeild hafa opið hús frá kl. 11.00-16.00.
Leiklistardeild og tónlistardeild eru með opið frá kl. 14.00-18.00.

Hægt er að bóka tíma fyrir hópa. Nánari dagskrá er á www.lhi.is