Ræðunámskeið
Samband ungra sjálfstæðismanna stendur fyrir ræðunámskeiði fyrir framhaldsskólanema. Fyrri hluti fer fram klukkan 17 fimmtudaginn 28. janúar og síðari hluti klukkan 17 laugardaginn 30 janúar. Boðið verður upp á veitingar. Námskeiðið verður haldið í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Farið verður yfir grunnatriði í ræðumennsku og einnig verður sérstaklega gerð grein fyrir keppnisræðumennsku. Námskeiðið mun enda með ræðukeppni á milli þátttakenda og hlýtur sigurvegarinn titilinn Ræðumaður SUS 2010.
Leiðbeinendur eru Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, og Ari Guðjónsson, laganemi, sem báðir eru reyndir ræðuþjálfarar.