AAA


Rymja

Rymja er söngvakeppni Keðjunar en þessi stórmerki viðburður verður haldinn hátíðlegur í Íslensku Óperunni föstudaginn 12. febrúar. 

Það eru um 15 þáttakendur sem munu spreyta sig á sviði Íslensku Óperunnar við góðan undirleik hljómsveit hússins sem er að þessu sinni Svitabandið. 

Dómara eru allir mjög þekktir og munu þeir velja í fyrstu þrjú sætin en sá sem sigrar þetta kvöld tekur svo þátt fyrir hönd Kvennaskólans í aðalkeppninni, Söngvakeppni Framhaldskólanna sem mun að öllum líkindum fara fram í apríl.

Miðasala hefst á mánudaginn klukkan 11:30-12:00 og verður í öllum hádegishléum fram að keppnisdegi en miðaverð er einungis 1000 krónur. Athugið seldir verða 450 miðar sem þýðir að færri komast að en vilja.

Þeir sem borga með KORTUM kaupa miðann inná Nemó

Þeir sem borga með PENINGUM kaupa miðann í matsalnum

Húsið opnar svo klukkan 19:30 á föstudaginn en keppnin hefst svo stundvíslega klukkan 20:00

Það má enginn Kvennskælingur þennan viðburð framhjá sér fara enda einn stærsti viðburður sem Keðjan heldur þetta skólaár. 

Íslenska óperan