Skráning á Rymju er hafin
Rymja, söngvakeppni Kvennaskólans verður haldin þann 12. febrúar næstkomandi. Keppnin mun fara í fram í Íslensku Óperunni þar sem raddir Kvennaskólans fá að njóta sín til hins ýtrasta!
Keðjan sér um að útvega frábærri hljómsveit til þess að spila lög keppenda þannig að þáttakendur þurfa að hafa engar áhyggjur af hljóðfæraleikurum.
Athugið að það er búin að vera mikil eftirspurn undanfarin ár fyrir þáttöku á Rymju þannig það er um að gera að sækja um tímalega en síðasti möguleiki til þess að skrá sig er 31. janúar. Það sem þarf að koma fram í umsókninni er:
- nafn
- bekkur
- lag
- orginal flytjandi
Senda skal umsóknina á kedjan@kvenno.is.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er um að gera að hafa samband.

Íslenska Óperan