Viðarstokkur
Kæru vinir,
Undanfarin ár hefur þessi atburður ekki náð þeim hæðum sem hefur verið ætlast til af honum. Hljómsveitirnar hafa verið af skornum skammti og léleg mæting hafa sett leiðinlegan svip á þennan atburð.
En núna er árið 2010 gengið í garð og það þýðir ekkert kjaftæði!
Viðarstokkur í verður bókstaflega "af króknum" í ár. Öllu verður tjaldað og gleðin verður tekið á næsta stig.
Tónleikarnir verða haldnir ár Sódómu á þriðjudaginn 9. Mars. Þetta er kvöldið á góðgerðadeginum okkar og þ.a.l. mun kosta litlar 500 krónur inn sem rennur óskipt til Mæðrastyrktarnefndar. Borgað við hurð.
Persónulega myndi ég vilja borga meira því hljómsveitirnar á tónleikunum verða sko engir Kiðlingar eða Ríó Tríó. Þær eru eftirfarandi:
JOHNNY AND THE REST: Blúsrokkarar frá iðrum helvíts. Skartar tveim fyrrverandi Kvennókonungum og trylltu þeir lýðinn á Viðarstokkum í gamla daga!
DRAUMHVÖRF: Efnilegir piltar. Á leiðinni hratt uppá stjörnuhimininn. Inniheldur tvo sykurpúða úr Kvennó, þá Ástvald og Þorvald sem glaðir gefa list sína þetta kvöld til styrktar góðu málefni.
BRÓÐIR SVARTÚLFS: Þessa drengi þarf ekki að kynna, ég ætla samt að gera það. Sigurvegarar í músiktilraunum á seinasta ári og hefur gersamlega tröllriðið landanum síðan. Komu í Kvennó í Eplavikunni og nánast rifu þakið af húsinu.
FOR A MINOR REFLECTION: Guðdómlegir náungar spila guðdómlega tónlist. Með Guðfinn Sveinsson, núverandi Herra Kvennó í fararbroddi ná þeir hæstu hæðum í dulmagnaðari og fallegri tónlist. Þeir hafa undanfarið verið að túra um allan heim sjálfir, sem og þeir hituðu upp fyrir Sigur Rós um allan heim, BEISIKK!
_______________________________________________________
Það er staðfest að þetta verður flottasti Viðarstokkur seinustu ára. Þannig að söfnumst saman, endum frábæran góðgerðardag með því að styrkja Mæðrastyrksnefdn og skemmta okkur frameftir kvöldi með yndislegum tónum. Svo náttúrulega daginn eftir er tjarnadagurinn!
Samantekt:
Þriðjudagurinn 9. Mars
Kl: 20
Johnny and the Rest
Draumhvörf
For a Minor Reflection
Bróðir Svartúlfs
500 krónur við hurð
Mæðrastyrktarnefnd
Beisikklí ossom!
Kv Listanefnd