Miðasalan á Nýjársballið 11. janúar hefst í fyrramálið kl. 09:10 á nemó í A!!
Ballið verður haldið á okkar ástkæra Nasa og hefst kl.22 þar sem einn rjómalagður dj þeytir skífum. Rúmlega ellefu stíga svo á svið snillingarnir í Gus Gus. Rúsínan í pulsuendanum er svo hann Óli Ofur sem byrjar eftir miðnætti.
Til þess að summa þetta upp þá verður þetta heljarinnar veisla og lofum við stórskemmtilegri skemmtun sem enginn á eftir að fara heim af svekktur!
Keðjan: 2000 kr. ; aðrir; 3000 kr.
Miðasala:
Fös: 09:10-14:30
Lau: 13:00-17:00
Mán: 09:10-14:30
Þri: 09:10-14:30 (Utanskólamiðasala)