Innskrá

HR-Áskorunin!

 

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hönnunarkeppninni HR-Áskorunin þann 18. febrúar 2012.

 Keppnin er opin öllum þeim sem hvorki hafa lokið háskólanámi né eru skráðir í háskólanám. Keppendur þurfa að leysa

ákveðna þraut sem reynir á tæknilegt innsæi og úrræðasemi.

 
  Description: HR-Áskorunin 2012 felst í því að hanna og smíða vél sem flytur geisladisk frá upphafsstað til lokastaðar. Vélin fer í gegnum a.m.k. 20 aðgerðir og þarf geisladiskurinn að hafa viðkomu á a.m.k. tveimur öðrum stöðum en upphafi og endi.

 

Skráning fer fram rafrænt og skila keppendur af sér myndskeiði og lýsingu á verkefninu á skráningarsíðu ekki seinna en 13. febrúar. Bestu lausnirnar komast í úrslitakeppni sem haldin verður á Háskóladeginum laugardaginn 18. febrúar 2012 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.
Hægt er að fá ráðgjöf kennara fimmtudaginn 26. janúar og 2. febrúar. Skráning í ráðgjöf fer fram á askorunin@hr.is, þangað má einnig senda fyrirspurnir um keppnina.
Bendi ykkur á vefinn www.askorunin.is