Innskrá

Ljóðaslamm

Myrkur og ljóðaslamm 2012


Fimmta ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar 2012. Að þessu sinni er þemað ‚myrkur’, en þema Safnanætur er ‚magnað myrkur‘.
Sem fyrr er ljóðaslammið ætlað ungu fólki (frá aldrinum 15-25 ára) og er skilgreint á afar opinn hátt sem einskonar ljóðagjörningur og er áherslan ekki síður lögð á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms.
Dagskrár síðustu fjögurra ára hafa einkennst af hugmyndauðgi, krafti og frumleika en fyrri þemu voru ‚spenna’, ‚hrollur’, ‚væmni‘ og ‚sjálfstæði‘. Eina krafan hefur verið sú að flutt væri frumsamið ljóð eða stuttur prósi og hafa þátttakendur sýnt dansverk, ör-leikþætti, rapp, fólk hefur sungið og leiklesið ljóð með myndefni svo eitthvað sé nefnt.
Fimm manna dómnefnd velur þrjú bestu atriðin. Í henni sitja fyrir hönd Borgarbókasafns Marí Þórðardóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur. Aðrir eru Stefán Máni rithöfundur, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Óttarr Proppé tónlistarmaður.
Upptökur af siguratriðunum þremur verða settar á ljodaslamm.is, sem er undirsíða borgarbokasafn.is og á YouTube.
Ljóðaslammið er haldið í samstarfi við Samband íslenskra framhaldsskólanema.
 


Sem fyrr segir er ljóðaslammið haldið á Safnanótt, 10. febrúar 2012, og fer dagskráin fram á aðalsafni Borgarbókasafns að Tryggvagötu 15 og hefst kl. 20:30.
Skráningarfrestur er til föstudagsins 27. janúar 2012.
Skráningareyðublöð er að finna á öllum Borgarbókasöfnunum, auk þess sem hægt er að skrá sig með tölvupósti hjá Birni Unnari Valssyni, bjorn.unnar.valsson@reykjavik.is. Frekari upplýsingar má nálgast á ljodaslamm.is (sjá borgarbokasafn.is) og hjá Guðríði Sigurbjörnsdóttur, gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is og Birni Unnari


Leiðbeiningar fyrir ljóðaslamm 2012
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs / ljóða þarsem áherslan er ekki síður á flutninginn, ‘performansinn’ eða gjörninginn, en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi / flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið.
 


Dæmi:


Tónlist (undirspil/millispil)
Rapp
Hljóðmynd (einhverjir hljóðeffectar)
Myndefni (myndband/skyggnur)
Leikrænn flutningur eða dans
Leiklestur


Almenn viðmið fyrir þátttakendur (og dómnefnd):



  • Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mín.

  • Ljóðið þarf að vera á íslensku.

  • Gæta verður þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópum.

  • Texti 40%, flutningur 60%. (Ath. þó að textinn verður að heyrast vel!)

  • Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald t.d., ekki aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inná sviðið og út af því aftur).

  • Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.