Kæru samnemendur!
Nú er loksins komið að því! Fyrsta góðgerðavika Kvennaskólans er að hefjast. Hún mun eiga sér stað vikuna 6. – 10. febrúar og endar á Rymju á föstudeginum. Hversu mikil snilld!? (ATH þessi vika tengist góðgerðadeginum ekkert, hann verður í árshátíðarvikunni 28. febrúar)
Í ár ætlum við að taka höndum saman og safna pening til styrktar UNICEF og þess vegna ætla allir að taka nóg af pening með sér í skólann, kort, seðla og klink!
Í þessari viku verður margt skemmtilegt um að vera og því fleiri sem taka þátt, því betri verður hún.
Dagskrá vikunnar er þannig að happdrætti verður í gangi alla dagana og mun miðinn einungis kosta 500 krónur. Miðarnir verða til sölu í matsalnum í hádeginu mánudag til fimmtudags. Vægast sagt frábærir vinningar eru í boði og því um að gera að kaupa helling af miðum.
Einnig ætla nokkrir aðilar að leggja sitt af mörkum með því að safna áheitum og þeir eru eftirfarandi:
Birgir Þór Björnsson og Vilhjálmur Rúnarsson ætla að ganga í kringum Tjörnina á speedo..með axlabönd, slaufu og sólgleraugu og hugsanlega sundhettur ef safnast 7500 kr. fyrir föstudaginn. Lengri vegalend verður farin ef upphæðin fer yfir 7500 kr.
Oddur Ævar Gunnarsson ætlar að labba aftur á bak með bundið fyrir augun heilan dag ef safnast 20.000
Rakel Dawn Hanson ferðast um á hlaupahjóli heilan dag ef safnast 15.000
Sindri Þorsteinsson gengur í býflugnabúning og leyfir gangandi vegfarendum að krota framan í sig heilan dag ef safnast 7500 kr.
Hægt verður að borga í merktar áheitakrukkur í hádeginu, mánudag – fimmtudags.
ATH að þetta er lágmarksupphæð og sá aðili sem nær að safna mestum pening hlýtur vegleg verðlaun!
Ef þú vilt safna áheitum, talaðu við góðgerðanefndina, þú finnur hana í matsalnum í hádegum!
Á mánudeginum verður frábært uppistandskvöld klukkan 21:00 í Uppsölum, þar sem Mið – Ísland verður með uppistand! 300 krónur inn, samasem ekki neitt fyrir frábæra skemmtun :)
Næstu tvo daga, þriðjudag og miðvikudag getið þið gætt ykkur á kræsingum í matsalnum þar sem pizzur frá Gömlu Smiðjunni verða til sölu á þriðjudeginum – 1 sneið á 250 kr. og 2 á 400- en margir lítrar af ísköldum Vesturbæjarís á miðvikudeginum – 1 box á 250 kr !
Á fimmtudeginum verða áfram happdrættismiðar til sölu í hádeginu ásamt því að hljómsveitin Snjólugt kemur og spilar fyrir okkur.
Loks í hádeginu á föstudeginum, verða vinningar í happdrættinu tilkynntir og þeir sem söfnuðu áheitum, framkvæma það sem þeir lofuðu að gera.
Hér að neðan getið þið séð hvaða vinningum þið gætuð átt von á ef þið fjárfestið í happdrættismiða:
10.000 kr. gjafabréf á Tapasbarinn
Gjafabréf upp á 8 Subwaybáta
Hádegisverður fyrir 2 á veitingastaðnum Happ
5000 kr. gjafabréf á Sólon
2, 5000 kr. gjafabréf á Grillhúsið
3 gjafabréf á Laundromat
Gjafabréf fyrir 2 af smakkseðli á Grillmarkaðnum/Fiskmarkaðnum
Gjafabréf fyrir 2 á veitingastaðnum Satt á Hótel Natura
Vikupassi í Baðhúsið (tæki, opnir tímar, laug, gufa og hvíldarhreiður)
2 mánaðarpassar í Sporthúsið
Dagspassi fyrir 2 í Bláfjöll
Gjafabréf fyrir 2 í River rafting í Hvítá hjá Artic Rafting
Gjafabréf fyrir 2 fullorðna og 2 börn í Fjölskyldu-og húsdýragarðinn
Reiðtúr fyrir tvo hjá Laxnes hestaleigu
5 bíómiðar í Bíó Paradís
6 bíómiðar í Háskóla-, Smára- og Borgarbíó
Miði á AIRWAVES 2012
Brauðrist frá Ormsson
Snilldar vika, snilldar vinningar og snilldar málefni!